139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

landsdómur.

247. mál
[17:49]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tók það sérstaklega fram að ég vildi ræða prinsippin, prinsippin um það sem við t.d. ræddum undir umræðunni hvort rétt væri að ákæra fyrrverandi ráðherra þar sem við tókumst á um hversu heppilegt eða óheppilegt það væri að pólitík og ákæruvaldi væri blandað saman.

Nú erum við kannski að ræða um það undir dálítið öðrum formerkjum vegna þess að hér er ákæruvaldið í málinu, hér er líka löggjafarvaldið og framkvæmdarvaldið komið saman allt í sama ræðustól til þess að taka ákvörðun um rammann utan um þá ákæru sem við sendum til meðferðar. Í prinsippinu finnst mér þetta rangt. Í fyrsta lagi að þetta sé gert eftir að ákært hefur verið. Mér finnst í prinsippinu rangt að ráðherra sé að hafa frumkvæði að breytingum á landsdómslögunum. Látum liggja á milli hluta hvort hann hafi tekið þátt í að ákæra eða verið þeirrar skoðunar að það bæri ekki að gera. Mér finnst það í prinsippinu rangt vegna þess að allt frumkvæði í þessu máli á að koma frá þinginu sjálfu og mér finnst því ekki hafa verið svarað sem ég benti hér á að þingið hefur í raun og veru nú þegar tekið afstöðu til allra álitaefna sem snúa að landsdómslögunum. Það var farið yfir það í löngu máli af þeim sem leiddu starfið í þingmannanefndinni að til nefndarinnar voru fengnir allir helstu sérfræðingar okkar Íslendinga á sviði t.d. sakamálaréttarfars og refsiréttar og hvað það allt heitir. Niðurstaða þeirra var sú að það væri engin þörf á breytingum á landsdómslögunum. En þá kemur ráðherrann hingað og segir: Við skulum samt ræða það. Þrátt fyrir að öll prinsipp séu brotin skulum við samt ræða það. Þarna erum við ósammála