139. löggjafarþing — 34. fundur, 24. nóv. 2010.
landsdómur.
247. mál
Hæstv. forseti. Ef Alþingi líkar ekki það frumvarp sem hér er talað fyrir hafnar Alþingi frumvarpinu. Málið er að fara fyrir Alþingi og það er Alþingis að taka ákvörðun í málinu. Það er okkar í þingsal að ræða málið málefnalega og það erum við að gera að uppistöðu til og erum kannski að færa okkur aðeins í áttina að því núna.