139. löggjafarþing — 34. fundur,  24. nóv. 2010.

landsdómur.

247. mál
[18:02]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Forseti. Það er um fundarstjórn forseta að segja nú sem fyrr að þetta er erfitt starf og sérstaklega þegar hv. þingmenn fara fram úr sér. Það er t.d. siður og kurteisi hér á þinginu að ef menn spyrja spurninga annan þingmann, þann sem hefur talað eða einhvern þann sem ekki hefur skipt sér af, verður sá þingmaður að hafa færi á að svara þeim. Það er — má ég nota orðið „billegt“? — að kasta fram spurningum út í salinn og inn í Alþingistíðindin sem ekki er hægt að svara fyrr en löngu síðar þegar tilefni spurningarinnar í hita augnabliksins er löngu horfið.

Ég vildi bara vekja athygli forseta á þessu þannig að hann geti brýnt það fyrir þingflokksformönnum og þeir tekið til bæna óbreytta þingmenn í sínum hópi hvað þetta varðar.