139. löggjafarþing — 35. fundur,  25. nóv. 2010.

málefni fatlaðra.

256. mál
[14:15]
Horfa

Arndís Soffía Sigurðardóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ólafi Þór Gunnarssyni, varaformanni félags- og tryggingamálanefndar, fyrir að vekja athygli á sérstöðu Sólheima í þessu samhengi þar sem þeir starfa á landsvísu. Mig langar til að spyrja hvort þingmaðurinn telji ástæðu til að taka málefni Sólheima og fleiri slíkra stofnana sérstaklega fyrir á fundi hv. félags- og tryggingamálanefndar.