139. löggjafarþing — 35. fundur,  25. nóv. 2010.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 55/2010 um breyt. á XX. viðauka við EES-samninginn.

236. mál
[18:00]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér heyrist hæstv. utanríkisráðherra beita því sem kallast a útlensku máli, svo útlenskur í hugsun sem hann er, „selective hearing“ — afsakið, frú forseti, að ég sletti á erlendum tungum — vegna þess að ég var ekkert að setja út á þennan fimmfalda fjárhagslega ávinning. Það sem hryggði mig við þetta mál var sú setning að ávinningurinn muni koma fram síðar og ekki hjá sömu aðilum og verði fyrir kostnaði. Þetta kalla ég ekki mikið réttlæti.

Aftur varðandi það hvort við eigum best heima í hinu fyrirheitna landi hæstv. ráðherra eða ekki heyrðist mér á ræðu hans að hann langaði mest að losna við mig úr landi og planta mér á Evrópuþinginu. Það er kannski einhver umræða sem við getum tekið seinna. En ég hvet hæstv. ráðherra aftur til að kynna sér þá skýrslu sem unnin var í utanríkismálanefnd árið 2007 og við ræddum undir öðrum dagskrárlið hér áðan.

Ég er einfaldlega ekki sammála því að við getum ekki haft þá rödd sem við þurfum til að beita okkur í þessum málum. Við höfum tækin en við höfum ekki verið að beita þeim. Og þó að við álpuðumst inn í þetta blessaða samband held ég að það mundi ekki heyrast neitt hærra í okkur. Við verðum ekkert fleiri við að fara inn í Evrópusambandið þó að hæstv. ráðherra telji að ýmislegt reiknist okkur til tekna. Við eigum — það eru skilaboðin sem ég byrjaði með í þessum ræðuhöldum í málum hæstv. utanríkisráðherra — að einbeita okkur að því að fá sem mest út úr samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Ég er þess fullviss, og hef þessa góðu skýrslu mér til sönnunar, að við höfum þar mörg ónýtt tækifæri sem við höfum ekki verið að nýta á undanförnum árum.