heimspeki sem skyldufag í grunn- og framhaldsskóla.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmönnum Hreyfingarinnar fyrir að leggja þetta ágæta mál fram og þar með fylgja eftir niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefndarinnar.
Ég veit til þess að nú er verið að vinna að viðmiðunarstundaskrá grunnskóla þar sem ætlunin er að siðfræðin verði skyldufag í grunnskólum. En ég tel mikilvægt að enn verði aukin áhersla á að allar hliðar heimspeki og gagnrýninnar hugsunar í kennslu í grunnskólum og framhaldsskólum. Ég hvet hv. þingmenn, alla þá sem hér sitja inni, til að veita þessari þingsályktunartillögu Hreyfingarinnar stuðning sinn og þar með að veita mennta- og menningarmálaráðherra jákvæða hvatningu til að efla kennslu í heimspeki á grunn- og framhaldsskólastigi þar sem mikilvægt mótunarskeið einstaklinga fer fram.