áhrif flutnings málefna fatlaðra innan skólakerfisins.
Frú forseti. Eins og menn vita munu málefni fatlaðra færast yfir til sveitarfélaganna um næstu áramót. Það má vel vera að hægt sé að gagnrýna hæstv. félagsmálaráðherra og fyrri félagsmálaráðherra fyrir að hafa ekki verið búnir að undirbúa málið nægilega mikið og í tíma. Við erum á síðustu metrunum og það er fyrst í síðustu viku sem frumvarp til breytinga á lögum hvað þetta snertir var rætt á þinginu. Við verðum engu að síður að sameinast um það í þinginu að reyna að gera þennan flutning sem bestan úr garði.
Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra varðandi það hvað ráðuneytið hefur skoðað í tengslum við þennan flutning á málefnum fatlaðra, hvort ráðuneytið hafi skoðað hvaða áhrif flutningur á málefnum fatlaðra til sveitarfélaga kunni að hafa á leikskólann, hvaða áhrif þessi flutningur kunni að hafa á grunnskóla og líka framhaldsskólann sem er á ábyrgð ríkisins og hvernig hægt er að nýta þennan flutning til að auka samhæfingu og efla þjónustu fyrir fatlaða innan skólakerfisins. Er eitthvað sem hæstv. menntamálaráðherra sér sem tækifæri í tengslum við þennan flutning þannig að fatlaðir geti líka aukið lífsgæði sín með því að nota skólakerfið sem á leik- og grunnskólastigi er að mestum hluta til á forsendum sveitarfélaganna sem munu annast málefni fatlaðra?
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra þessarar spurningar: Hvaða samræður hafa til að mynda átt sér stað milli ráðuneytisins og við sveitarfélögin til að reyna að auka samfelluna, bæta þjónustuna við fatlaða, og hvað hefur ráðuneytið skoðað innan framhaldsskólanna? Og nú þegar málefni fatlaðra munu brátt falla undir sveitarfélögin spyr ég hvaða þýðingu það hafi þá fyrir framhaldsskólann og þjónustuna sem fötluðum er veitt þar. Ég vil gjarnan heyra það frá ráðherra hvaða hlutir og þættir hafa verið skoðaðir sem tilheyra mennta- og menningarmálaráðuneyti til að nýta sér tilflutning á málefnum fatlaðra og sjá hvort ekki eru einhver sóknarfæri innan menntakerfisins í þágu fatlaðra.