kaup Ríkisútvarpsins á efni frá sjálfstæðum framleiðendum.
Frú forseti. Við tókumst mjög á um rekstrarbreytinguna á Ríkisútvarpinu á sínum tíma. Sú gagnrýni var að hluta til skiljanleg en að hluta til ekki. Ein af forsendum þess að farið var út í breytinguna á Ríkisútvarpinu var sú að efling Ríkisútvarpsins væri liður í því að efla kvikmyndagerð. Við fórum annars vegar út í það að efla Kvikmyndasjóð markvisst til að stuðla að aukinni íslenskri dagskrárgerð, kvikmyndum, heimildamyndagerð o.s.frv., og síðan átti Ríkisútvarpið að spila veigamikinn þátt í því og allir voru mjög meðvitaðir um þetta. Tækið sem menntamálaráðuneytið hefur til að gæta þessa aðhaldshlutverks gagnvart Ríkisútvarpinu er í gegnum þjónustusamninginn. Nú erum við að fá skýrslu frá kvikmyndagerðarmönnum unna fyrir mennta- og menningarmálaráðuneytið, um starfsskilyrði kvikmyndagerðar á Íslandi, þar sem m.a. kemur fram mikil gagnrýni á Ríkisútvarpið.
Ég tel mér skylt að taka þetta upp af því að ég batt miklar vonir við þjónustusamninginn enda kemur í ljós að á fyrsta ári þjónustusamningsins og á fyrsta rekstrarári eftir að Ríkisútvarpið var ohf.-vætt uppfyllti Ríkisútvarpið að mestu skilyrði þessa þjónustusamnings en síðan hefur verulega hallað undan fæti gagnvart kvikmyndaframleiðendum, gagnvart sjálfstæðum framleiðendum, í þá veru að Ríkisútvarpið uppfyllir ekki að mínu mati, samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir, þær skyldur sem gerðar eru í þjónustusamningnum. Vissulega hafa framlög til Ríkisútvarpsins að einhverju leyti skerst en framlögin hafa hlutfallslega lækkað meira en skerðingunni nemur.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra að því hvað endurskoðun á þjónustusamningnum líði og hvernig ráðuneytið ætli síðan að fá Ríkisútvarpið til að uppfylla þær kvaðir sem eru í þjónustusamningnum og þá sérstaklega með sjálfstæðu framleiðendurna í huga og íslenska kvikmyndagerð. Eins og ég gat um í upphafi máls míns var efling og styrking á kvikmyndagerðinni fólgin í þessum tveimur þáttum, að efla Kvikmyndasjóð með ákveðnum skilgreindum markmiðum, íslensku dagskrárefni, heimildamyndagerð og ekki síst kvikmyndagerð, og síðan að styrkja RÚV og beina því í auknum mæli í þann farveg að kaupa aukið innlent dagskrárefni, að Ríkisútvarpið þyrfti að fara að forgangsraða í sínum ranni m.a. með þetta veigamikla markmið í huga.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvernig hún hyggist ræða við Ríkisútvarpið svo að þessu markmiði verði náð og hvenær vænta megi svara í þeim efnum.