139. löggjafarþing — 38. fundur,  29. nóv. 2010.

greiðsluaðlögun einstaklinga o.fl.

152. mál
[17:29]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga sem flutt er af hv. félags- og tryggingamálanefnd og sýnir að stjórn og stjórnarandstaða geta unnið saman. Hv. nefnd leysti þetta mál í sumar og það varð að lögum 24. júní og ég tel að hafi verið brýnt.

Hér eru lagðar til breytingar á þeim lögum sem eru nauðsynlegar í ljósi reynslunnar. Það stóð alltaf til að menn reyndu að átta sig á því hvernig þetta kæmi út. Það sem hefur komið í ljós er að íslenskir ríkisborgarar eru hugtak sem var ekki nógu gott að nota varðandi þá sem búa erlendis. Eins er vandamál með námsmenn vegna námslána. Þetta telur nefndin að búið sé að laga með nokkrum breytingum.

Svo kom upp að menn gætu hugsanlega fengið tilboð í húsið sitt á meðan á biðtímanum stendur, sem verður óhjákvæmilega vegna öflunar gagna og annars. Þess vegna er sett inn að heimilt sé að ganga að kaupum og sölum á eignum til þess að hraða því og líka til að menn geti minnkað við sig. Ég held að þetta sé allt til bóta. Ég stend að frumvarpinu að sjálfsögðu.

Vandinn sem við glímum við er að talið er að nokkur þúsund manns eða heimili séu í þessum mikla og alvarlega vanda. Hve stór vandinn er vitum við ekki vegna þess að ekki hefur farið fram könnun á stöðu heimilanna. Upplýsingarnar sem við höfum eru nokkuð gamlar og eru frá því fyrir dóm Hæstaréttar í gengistryggðu lánunum sem breytti stöðu heimilanna allverulega, sérstaklega eignarstöðunni, til hins betra.

Það sem vantar á er hraði. Menn hafa ekki getað ráðið við nema tiltölulega fáa aðila sem talið er að þurfi á þessum úrræðum að halda. Ég vona að hraðinn náist fljótlega upp enda er búið að setja mikla fjármuni í umboðsmann skuldara.

Fyrir örstuttu féll dómur Hæstaréttar um að óheimilt væri að undanskilja lánsveð, þ.e. að lánsveðin héldu þrátt fyrir þessa lagasetningu. Ég tel brýnt að hv. félagsmálanefnd fari í gegnum það hvort vandann þurfi að leysa á borði nefndarinnar eða annarrar nefndar í þinginu. Það er einboðið að það þarf að leysa vandann og breyta lögum sem Hæstiréttur vísar í þannig að við séum ekki að brjóta eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar. Ég tel það vera brýnt.

Hins vegar tel ég að frumvarpið eitt sér, breytingar á lögunum, snerti vandamálið ekki sérstaklega. Menn kunna að halda að það mætti breyta lögunum í leiðinni. Ég held að það þurfi meiri yfirlegu en tímarammann sem við höfum til að laga stöðu námsmanna sem fá ekki lán frá bönkunum vegna þess að lánin eru ekki tryggð.

Ég tek undir með hv. formanni nefndarinnar að nefndin þarf að skoða þetta milli umræðna og fara í gegnum vafaatriði sem leiða af þessum hæstaréttardómi.