Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Þegar maður ber augum það frumvarp sem liggur á borðum okkar þingmanna þakkar maður nánast guði fyrir leitarforritin í tölvunum því að við sjáum hér afraksturinn af því sem við kölluðum yfir okkur með þeim breytingum sem gerðar voru á lögunum um Stjórnarráð Íslands þegar tekin var ákvörðun um að sameina í tvö ráðuneyti fjögur ráðuneyti sem áður höfðu starfað, þ.e. annars vegar félags- og tryggingamálaráðuneytið og hins vegar heilbrigðisráðuneytið og síðan dóms- og mannréttindaráðuneytið annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hins vegar. Við sjáum að gera þarf að breytingar á örugglega tugum laga ef ekki fleirum, að mér sýnist. Það er í einum 260 efnisgreinum.
Ég geri ráð fyrir því að það verði verkefni þeirrar nefndar sem fær þetta mál til meðhöndlunar að fara enn og aftur af stað með leitarforritin í þinginu til þess að leita af sér allan grun um að ekki hafi gleymst einhver löggjöf sem þurfi að gera breytingar á þannig að tæmd verði sú upptalning sem er í frumvarpinu. Það verður þá verkefni tölvusérfræðinga Alþingis að fara í gegnum það með þingnefndinni og komast að raun um hvort örugglega er búið að fara yfir allt lagasafn Alþingis, hvort einhvers staðar hafi eitthvað farið fram hjá vökulum augum tölvanna í forsætisráðuneytinu, hugtök eins og félagsmálaráðherra eða samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, hvort einhvers staðar þurfi að leita betur.
Það er nú kannski það sem snýr efnislega að frumvarpinu. Í sjálfu sér má segja að þetta sé í ákveðnum skilningi tæknilegt frumvarp þó að það sé um leið jafnframt einhvers konar innsigli á því verki sem hófst með þeim lagabreytingum sem urðu í haust þegar gerðar voru breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands.
Tilefni ræðu minnar er hins vegar að bregðast við og vekja athygli á því að í umræðu um þetta tæknilega frumvarp, sem er upp á 260 efnisgreinar, komu fram heilmikil tíðindi hjá hæstv. forsætisráðherra, sem er ástæða til að vekja athygli á og kalla eftir atvikum eftir svörum til að skýra aðeins betur fyrir okkur hvað hér er á ferðinni. Hæstv. forsætisráðherra sagði nákvæmlega að nú væri ætlunin að steypa saman í eitt ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu og síðan iðnaðarráðuneytinu og gera það með tilteknum hætti og jafnframt að leggja hluta af þeim verkefnum sem nú eru í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu inn í nýtt ráðuneyti umhverfis- og auðlindamála.
Það er alveg rétt sem hæstv. forsætisráðherra sagði, í nefndaráliti meiri hluta allsherjarnefndar, þ.e. stjórnarliðanna í allsherjarnefnd, var kveðið mjög afdráttarlaust upp úr um það. Sagt var: Það á að stefna að því að sameina sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og iðnaðarráðuneytið. Gleymum því ekki að frumvarpið sem upphaflega var lagt fram gerði ráð fyrir því að sameiningin ætti sér stað. Hins vegar hafði hæstv. ríkisstjórn ekki vald á því máli. Það var ekki pólitískur meiri hluti fyrir málinu í þinginu og ríkisstjórnin brá þess vegna á það ráð að láta fulltrúa sína í allsherjarnefnd koma með breytingartillögu og fella burtu hugmyndir út úr frumvarpinu sem kváðu á um sameiningu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis og iðnaðarráðuneytis og breytingar á umhverfisráðuneytinu.
Nú kemur hæstv. forsætisráðherra hins vegar og segir: Það er enginn bilbugur á okkur, við ætlum að láta þetta ganga eftir og það verður gert í anda þess sem meiri hluti allsherjarnefndar sagði í nefndaráliti sínu.
Þegar þessi mál voru afgreidd fyrr á þessu ári var talað um að málið ætti að fara í mikið samráðsferli og að því samráði ættu að koma fulltrúar þeirra atvinnugreina sem um væri að ræða, þ.e. iðnaðarins, sjávarútvegsins og landbúnaðarins. Eins og allir vita er gríðarleg andstaða á þeim bæjum við hugmyndir um sameiningu ráðuneytanna og sérstaklega þeim fyrirætlunum í sameiningarhugmyndunum sem fela það í sér að taka auðlindastjórnina sjálfa undan hinu nýja atvinnuvegaráðuneyti, sem svo er farið að kalla, og fella hana undir nýtt umhverfis- og auðlindaráðuneyti. Gegn því hafa allur sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn risið. Sjávarútvegurinn og landbúnaðurinn í landinu eru ekki til viðtals um að standa að slíkum breytingum. Vitaskuld getur hæstv. ríkisstjórn með þingmeirihluta sínum farið sínu fram ef hún vill endilega gera breytingar á fagráðuneytum sem snúa að þessum atvinnugreinum í bullandi andstöðu við atvinnugreinarnar sjálfar. Auðvitað getur ríkisstjórnin ákveðið að gera það þannig, þá ekki í anda neins samráðs heldur í anda einhvers konar tilskipana. Ég hefði haldið að ef einhver merking hefði verið á bak við hugmyndir hæstv. forsætisráðherra um að efna til samráðs um þær breytingar, hefði það samráð kannski getað leitt til einhverrar niðurstöðu sem menn hefðu getað unað við þó að það hefði þýtt að aðilar yrðu að slá af sínum ýtrustu kröfum.
Þess vegna spyr ég hæstv. ráðherra: Hvar stendur það samráð núna? Hvað er að frétta af því? Hafa ekki verið haldnir einhverjir fundir? Hafa þeir leitt til einhverrar niðurstöðu? Hafa menn skoðað þetta eitthvað? Hafa sjónarmið sjávarútvegsins og landbúnaðarins eitthvað breyst í þessum efnum? Ég hef ekki upplýsingar um það. Ég hef svo sem ekkert verið að leita eftir því upp á síðkastið hvort viðhorf manna hafi breyst í þessum efnum en ég geri ráð fyrir að hæstv. ráðherra hafi upplýsingar um með hvaða hætti menn nálgast málin í anda þess samráðs sem boðað var.
Það vill þannig til að það eru ekkert mjög margir dagar síðan við ræddum frumvarp til laga um skelrækt, sem er við fyrstu sýn kannski ekki nátengt hugmyndum um breytingar á Stjórnarráðinu. Þar gerðist það hins vegar að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra lagði pínulitla lykkju á leið sína í umræðunni, og hvað sagði hann? Hann vék orðum sínum sérstaklega að þeim hugmyndum sem uppi væru um að sameina sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið iðnaðarráðuneyti og taka síðan auðlindanýtinguna og auðlindastýringuna í landinu undan því ráðuneyti. Hvað sagði hæstv. ráðherra um það, sem er, eftir því sem ég best veit, enn þá í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur? Hæstv. ráðherra sagði: Það er algert rugl. Það verður ekki. Það er bara bull og rugl, þvæla, sem auðvitað er ekki hægt að samþykkja.
Ný spyr ég: Er orðið samkomulag milli stjórnarflokkanna um það verklag sem hæstv. ráðherra greindi okkur frá í andsvari áðan? Eru Vinstri grænir búnir að kyngja öllum stóru orðunum, samþykktinni norður á Akureyri frá því fyrr á þessu ári þar sem þeir vöruðu við hugmyndum um að sameina ráðuneytin og gelda síðan sjálft auðlindaráðuneytið, ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarmála, með því að taka undan þeim bæði auðlindanýtinguna og auðlindastýringuna? Eru Vinstri grænir búnir að samþykkja þessa hugmyndir sem hæstv. ráðherra greindi okkur frá áðan að því mér virtist algjörlega fyrirvaralaust? Hæstv. ráðherra sagði okkur frá því hvernig staðið yrði að þessu. Það yrði gert einhvern veginn þannig að skipaður yrði nýr ráðherra sem færi með sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarmálin í ráðuneytum án þess að þau væru sameinuð. Það er alls ekki vitlaust verklag í sjálfu sér ef menn ætla að sameina á annað borð. Ég hef sjálfur tekið þátt í slíkri vinnu og ég get alveg borið vitni um að það er ekki endilega óskynsamlegt verklag ef menn ætla á annað borð að fara í þær ógöngur að sameina þessi ráðuneyti.
Hæstv. ráðherra sagði jafnframt að von sín væri að sú löggjöf sem þyrfti svo að koma með í frumvarpsformi í þingið og fá Alþingi til þess að samþykkja, gæti síðan tekið gildi í mars á næsta ári. Mars er ekki mjög langt undan, hæstv. forsætisráðherra. Mars er eftir bara fjóra mánuði eða þar um bil.
Þegar við horfum til baka sjáum við að hæstv. ríkisstjórn stóð þannig að málum þegar verið var að undirbúa þær stóru sameiningar sem fjallað er um í frumvarpinu og eiga að taka gildi um næstu áramót, að tveimur ráðherrum var ýtt út, eða reyndar fleirum, og settir voru nýir ráðherrar yfir annars vegar dómsmála-, mannréttinda-, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytin og hins vegar yfir heilbrigðis-, trygginga- og félagsmálaráðuneytið. Það eru fjórir mánuðir þangað til löggjöfin á að taka gildi.
Ég þykist sjá það í hendi mér að hæstv. ráðherra, sem talar greinilega um hlutina eins og búið sé að ákveða þá, undirbúi breytingar á skipan ríkisstjórnar innan mjög fárra daga. Fram undan eru áramótin.
Nú vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Ber þá að skilja orð hæstv. ráðherra þannig að ætlunin sé að gera breytingar á ríkisstjórninni á næstu dögum og vikum? Er þetta ekki vísbending um að hæstv. ráðherra hafi komist að pólitísku samkomulagi um það? Var það kannski gert samtímis því að uppstokkunin í ríkisstjórninni átti sér stað fyrr á árinu? Liggur það þá orðið fyrir sem pólitískt samkomulag milli flokkanna þótt ekki sé búið að leggja fram frumvarpið?
Það er ekki kannski við því að búast að hæstv. ríkisstjórn, þótt bjartsýn sé og geti nú beitt ýmsum brögðum, ætlist til þess að slík lagabreyting átt sér stað á þeim fimm eða sex þingfundardögum sem eftir eru af Alþingi áður en við förum í hefðbundið jólaleyfi samkvæmt starfsáætlun, sem er nú skammt undan. Þess vegna er ekki við því að búast að fram komi frumvarp í þessa veru fyrir þann tíma. En má þá líta þannig á að hæstv. ríkisstjórn hafi komist að pólitísku samkomulagi, að hún hafi ákveðið að hafa orð hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um að þetta sé algjört rugl, að engu og að þau sjónarmið sem verið hafi þar til grundvallar hafi verið ofurliði borin innan ríkisstjórnarinnar?
Það var ekki hugmynd mín að taka til máls þegar málið kom fram, þetta stóra mikla frumvarp, afsprengi leitarforrita forsætisráðuneytisins í 260 greinum, breytingar á a.m.k. tugum laga. Ég hef ekki haft tíma til að telja það allt saman nákvæmlega saman. Ég bjóst satt að segja ekki við því að frumvarp um breytingar á fyrirkomulagi ríkisstjórnarinnar og öðrum lögum um Stjórnarráðið sem ríkisstjórnin gafst upp á að breyta núna í haust, yrði boðað undir rós — og þó ekki undir rós, reyndar með býsna skilmerkilegum hætti af hálfu hæstv. forsætisráðherra. En menn hafa greinilega, ef marka má orð hæstv. forsætisráðherra, hert sig upp í því að leggja fram frumvarpið að nýju og gera það fljótlega til að lagabreytingin geti tekið gildi og ný ráðuneyti geti tekið til starfa með breyttri hlutverkaskipan og breyttum viðfangsefnum strax í mars á næsta ári.
Ég óska sérstaklega eftir að hæstv. ráðherra leitist við að svara þeim spurningum sem hún kallaði fram. Frumvarpið gefur í sjálfu sér ekki tilefni til slíkra vangaveltna eða fyrirspurna af minni hálfu, en orð hæstv. ráðherra gera það svo sannarlega. Þess vegna óska ég eftir því í mikilli vinsemd að hæstv. ráðherra greini okkur betur frá því hvernig málin standa, hvort komin sé pólitísk niðurstaða í málinu, sem ég markaði af orðum hæstv. ráðherra áðan. Ég ítreka að öðru leyti þær spurningar sem ég hef þegar lagt fyrir hæstv. ráðherra.