139. löggjafarþing — 40. fundur,  30. nóv. 2010.

stjórn vatnamála.

298. mál
[17:20]
Horfa

Íris Róbertsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við vitum öll að við þurfum að framleiða. Hæstv. umhverfisráðherra nefndi áðan bæði landbúnað og matvælaframleiðslu. Þarf ekki að vera búið að ákveða hvernig á að greiða fyrir það sem á að gera áður en haldið er af stað, þótt að þetta sé tilskipun og við séum orðin of sein? Við erum hvort sem er búin að draga lappirnar í málinu eins og ráðherra benti á áðan. Er enginn möguleiki á því að fá undanþágu frá þeim aukakostnaði við ríkisbáknið?