Afbrigði um dagskrármál.
Virðulegi forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um afbrigði vegna mála sem ríkisstjórnin telur mjög brýn og afar mikilvægt að komist hér á dagskrá og tengjast m.a. fjárlögum.
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ætlar ekki að standa gegn því að þessi mál komist á dagskrá enda höfum við sagt að við munum greiða fyrir málum sem nauðsynlegt er að koma í gegn hér vegna fjárlaga. En það er með ólíkindum hvernig vinnubrögðin hafa verið varðandi þetta mál og varðandi dagskrá Alþingis í dag. Ég hvet hæstv. forseta og hv. stjórnarflokka til þess að bæta vinnubrögðin nú í aðdraganda jólatarnarinnar sem við erum að fara inn í vegna þess að það er algjörlega kristaltært að ef svo heldur áfram sem horfir verður það ekki endilega vönduð lagasetning sem við stöndum uppi með hér fyrir jólahlé.