139. löggjafarþing — 41. fundur,  30. nóv. 2010.

Afbrigði um dagskrármál.

[18:39]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Nú hagar því þannig með þau mál sem hér eru að koma inn að þau eru í sjálfu sér þess eðlis, eins og þegar hefur komið fram, að þau tengjast fjárlögum og afgreiðslu þeirra og eru þar af leiðandi brýn og að sjálfsögðu hefur efni þeirra komið fram þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fram. Það er auðvitað gerð grein fyrir því í fjárlagagafrumvarpinu og greinargerð með því hvaða ráðstafana þarf að grípa til þannig að að sjálfsögðu mátti vita að mál af þessum toga kæmu fram.

Lengi má hins vegar gott bæta og það á að sjálfsögðu við um vinnubrögðin hér í þingsal og í þinginu, líka af hálfu ríkisstjórnarinnar og við munum að sjálfsögðu beita okkur fyrir því. Ég vil einkum og sér í lagi þakka þingflokkum stjórnarandstöðunnar fyrir mikla lipurð og jólaskap sem bersýnilega er hlaupið í þá þingmenn með því að greiða fyrir þingstörfum.