139. löggjafarþing — 41. fundur,  30. nóv. 2010.

tekjuskattur.

300. mál
[18:58]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég minnist þess á árum áður að þingmenn kröfðust þess aftur og aftur við 2. og 3. umr. að ráðherrar væru viðstaddir mál sem þeir flyttu þó að það væri í rauninni komið í hendur þingsins. Hér er það að gerast að ráðherra sem flytur mál mælir ekki einu sinni fyrir því. Ég man bara ekki eftir að það hafi gerst. Vel má vera að það hafi einhvern tíma gerst en ég man ekki til þess. Mér finnst það alveg með ólíkindum.

Hvernig í ósköpunum eigum við að spyrja fagráðherrann, fjármálaráðherrann, um fagið fjármál eða skatta? Ég get ekki séð að hæstv. umhverfisráðherra, þó að fær sé, geti svarað fyrir stefnu fjármálaráðherra í skattamálum. Það er allt í lagi með þetta litla mál hérna en þegar kemur að stóra málinu þá vil ég í fyrsta lagi fá tíma til að lesa það og svo vil ég fá þann ráðherra sem flytur það til að svara.