tekjuskattur.
Hæstv. forseti. Það var fljótt að fara jólaskapið úr fólki enda um skrýtin vinnubrögð að ræða. Ég tel rétt, frú forseti, að fundi verði frestað þar til hæstv. fjármálaráðherra nennir að sinna þinginu.
Virðingarleysið við þingið er algert. Ég tel að við eigum að læra af skýrslu þingmannanefndarinnar sem unnin var upp úr skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þessi vinnubrögð sýna okkur að við höfum lært afskaplega lítið. Mér þykir afar leiðinlegt hvernig þetta kemur til og hvet hæstv. forseta til að bregðast við á þann hátt að þingflokksformenn verði kallaðir hið snarasta á fund til að fara yfir málið og framhald þess.