139. löggjafarþing — 41. fundur,  30. nóv. 2010.

tekjuskattur.

300. mál
[19:12]
Horfa

Mörður Árnason (Sf) (um fundarstjórn):

Forseti. Ég er, eins og hæstv. utanríkisráðherra segir stundum, óbreyttur starfsmaður á plani. Ég hef beðið í dag eftir að komast til minna verka og ekki verið inni í þeim samningum sem gerðir hafa verið. Ég skil hv. stjórnarandstæðinga ákaflega vel. Hér eru tvö mál á dagskrá sem koma seint og þá vill svo til að hæstv. fjármálaráðherra er ekki staddur hér til að flytja þau. Það er óheppilegt. Ég hefði rifist mikið yfir þessu ef ég væri í stjórnarandstöðu og fundið oft að fundarstjórn forseta um þetta. Þannig er það bara og það er ekkert meira um það að ræða.

Þá er bara spurningin: Ætlum við að setja allt upp í loft, fresta þessum tveimur málum sem augljóslega eru mál sem þarf að afgreiða hvort sem maður er í stjórn eða stjórnarandstöðu eða ætlum við að reyna að gera gott úr þessu? Ég hvet menn til að hugsa jákvætt eins og við eigum að gera í þessu ágæta valdi okkar (Forseti hringir.) og reyna að komast í gegnum þetta án þess að kveikja elda sem erfitt er að slökkva.