139. löggjafarþing — 41. fundur,  30. nóv. 2010.

tekjuskattur.

300. mál
[19:55]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi máls míns fagna framlagningu þessa frumvarps. Ég tel mikla réttarbót í því felast. Eins og hefur komið fram í umræðunni er misbrestur á því hvernig farið er með tryggingabætur sem fólk hefur fengið út úr sjúkdómum eða slysum og ég tel þetta mikla réttlætisbót.

Þeir söluaðilar sem hafa verið að selja þessar tryggingar hafa selt þær undir þeim formerkjum að þær bætur sem kaupandi tryggingarinnar fær lendi hann í óhappi séu ekki skattskyldar. Ég tel, virðulegi forseti, að það sé mikilvægt að þessu verði breytt.

Ég vek hins vegar athygli á því að í frumvarpinu er einungis gert ráð fyrir að þetta gildi fyrir þær tryggingar sem eru keyptar fyrir 1. desember 2010. Þá hljóta að vakna þær spurningar, það er ekki hægt að skilja það öðruvísi í frumvarpinu, hvort þessar tryggingabætur muni eftir þann tíma sem frumvarpið tekur gildi verða skattskyldar. Það tel ég ekki vera skynsamlegt.

Ég vil bara minna hv. þingmenn á að við höfum fengið póst frá fólki sem keypti svona tryggingu og lenti síðan í því að barn þess fékk krabbamein sem var að sjálfsögðu mikið áfall og miklar áhyggjur út af því og að það þurfi síðan í ofanálag að hafa fjárhagslegar áhyggjur út af skattaskuldum sem verði hugsanlega lagðar á fjölskylduna. Mín skoðun er alveg skýr, virðulegi forseti, mér finnst að þessar bætur eigi ekki að vera skattskyldar. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að skattleggja.

Ég ítreka enn og aftur að mér finnst að það þurfi að endurskoða frumvarpið í hv. efnahags- og skattanefnd og fella út þetta ákvæði um 1. desember 2010. Ég tek undir með hv. þm. Pétri H. Blöndal að það verði að ræða þetta í víðara samhengi. Eins og hann benti á í andsvari sínu áðan eru fleiri spurningar sem snúa að öðrum hlutum gagnvart fólki sem lendir í tjóni, eins og hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir benti á í sambandi við kaskótrygginguna. Ég verð að segja, virðulegi forseti, að mér finnst ekki passa — þó svo að menn verði að sjálfsögðu að skoða alla kanta á því þegar fólk kaupir slíkar tryggingar á annað borð — að fólk sem hefur keypt sér tryggingar og er búið að borga skatta af þeim peningum sem það kaupir tryggingarnar fyrir eigi að vera tvískattað. Það er nóg komið af skattlagningu þannig að ég fagna sérstaklega framlagningu þessa frumvarps.