139. löggjafarþing — 41. fundur,  30. nóv. 2010.

fundarstjórn.

[20:57]
Horfa

Forseti (Ragnheiður Ríkharðsdóttir):

Forseti áréttar að verið er að ræða fundarstjórn forseta og forseti hefur þegar tilkynnt að kjörinn forseti Alþingis, í samvinnu við þingflokksformenn þeirra flokka sem sitja á þingi, ákvað þessa dagskrárbreytingu, að taka út þrjú síðustu málin á þessum fundi. Forseti hefur þegar upplýst í hverju sú breyting er fólgin og af hverju.