139. löggjafarþing — 42. fundur, 6. des. 2010.
nýr Icesave-samningur.
Frú forseti. Síðan ég var í ræðustól fyrir nokkrum mínútum hefur það gerst að formaður Sjálfstæðisflokksins hefur formlega óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd. Ég geng út frá því að hann sé að fara fram á það fyrir hönd fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í nefndinni og með þá beiðni verður að sjálfsögðu farið í samræmi við ákvæði þingskapa.