139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

störf þingsins.

[14:14]
Horfa

Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessu frumkvæði hv. þm. Þráins Bertelssonar til að minna þingmenn á að góður samstarfsvilji á þinginu er okkur öllum mikilvægur og að þjóðin gengur í gegnum erfiða tíma. Ég heyri að hv. þingmaður kallar mig fram sem formann í stærsta stjórnarandstöðuflokknum en ekki þann sem hann er kannski sérstaklega að tala um, sem hér hefur staðið bölsótandi vegna ástandsins. (ÞrB: Þú ert glaður og bjartsýnn.) Ég er glaður og bjartsýnn og ég vil að þjóðin sé glöð og bjartsýn. Ég hef því miður haft þá skoðun, og er þeirrar skoðunar enn, að margt af því sem ríkisstjórnin er að gera veiti mönnum ekki nægilega mikla birtu, ekki nægilega mikla trú og von á framtíðina. Á meðan svo er verðum við í því hlutverki í stjórnarandstöðunni að benda á valkostina og aðrar leiðir út úr myrkrinu inn í þessa björtu framtíð ljóss og friðar (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður kallar eftir.