139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

brunavarnir.

79. mál
[17:40]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það eru kannski síðustu orð hv. þingmanns í þessu andsvari sem eru mér nægjanleg, að hv. þingmaður sé sammála því að taka þetta til 3. umr. og að skýrleiki laganna eigi að vera meiri og setja eigi hann fram.

Virðulegi forseti. Ég neita því að þetta snúist um einhverja valdabaráttu milli opinberrar stofnunar og einhvers einkafyrirtækis. Ég var ekkert hræddur við það þegar Flugstoðum var breytt í opinbert hlutafélag og síðan sameinuðust félögin Flugstoðir og Keflavíkurflugvöllur og allt þetta. Ég held að þetta hafi allt saman verið til góðs. Það er nútíminn í dag að hafa þetta svona. Þetta snýst ekki um það, þetta snýst bara um atriði eins og öryggissjónarmiðin og hvort sem við setjum alþjóðaskuldbindingar númer tvö eða hagkvæmni númer þrjú eða öfugt blandast þessir hlutir óneitanlega saman. Okkar litla þjóð þarf að finna út úr því hvernig hlutirnir verða best gerðir á sem hagkvæmastan hátt. En ég ítreka það sem ég sagði áðan, virðulegi forseti: Andmæli mín hvað þetta varðar eru ekki þess eðlis að ég telji að það eigi að gefa einhvern afslátt á öryggi. Það má aldrei verða, öryggið er alltaf númer eitt, tvö og þrjú í þessum málum. Þarna eru það mínútur og sekúndur sem skipta sköpum.

Við hljótum að geta áttað okkur á þessu þegar við förum út á flugvöll og um borð í flugvél eða erum að lenda og sjáum slökkviliðsmenn sitja þar í bílum, fullbúnum bílum, öruggum bílum sem eru kannski sérútbúnir til að slökkva eld eða koma og bregðast við vegna loftfars sem hlekkist á. Þetta hlýtur að vekja okkur mikla öryggiskennd. Mér finnst mjög gott að sjá það að bíllinn er alltaf mannaður og menn eru til staðar við lendingu eða þegar farið er í loftið. Ég er alveg sannfærður um þetta og ég tala um það af þessum eldmóði, virðulegi forseti, vegna þess að ég fór í gegnum þetta mál allt í sumar (Forseti hringir.) og komst að þeirri niðurstöðu að þessu sé best fyrir komið eins og það er og það eigi að koma í veg fyrir að stofnanir séu að rífast (Forseti hringir.) um þetta út af óskýrum lögum. Þar erum við sammála, ég og hv. þingmaður