139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

brunavarnir.

79. mál
[17:42]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegi forseti. Það eru nokkur atriði í þessu máli sem mig langar að tæpa á. Ég ætla að byrja á því máli sem mest hefur verið rætt af hv. þingmönnum sem tóku til máls á undan mér en það er sú breyting að færa stjórn á viðbúnaði á flugvöllum yfir til slökkviliða sveitarfélaga frá Flugmálastjórn.

Eins og segir hér, með leyfi forseta, í breytingartillögum:

„Vegna mannvirkja þar sem um er að ræða starfsemi sem af stafar sérstök slysahætta, svo sem á stærri flugvöllum, getur slökkviliðsstjóri krafist skýrslu um viðbragðsstyrk, þar með talinn mannafla og búnað, frá þeim sem rekur mannvirkið eða eiganda þess. Sé viðbragðsstyrkur ófullnægjandi að mati slökkviliðsstjóra skal hann gera kröfu um úrbætur og grípa til aðgerða samkvæmt VIII. kafla ef henni er ekki sinnt.“

Nú förum við eftir alþjóðlegum stöðlum og reglum í þessu sambandi. Talað hefur verið um það hér hvort við gerðum sömu kröfur og væru gerðar í Kólumbíu eða á Fílabeinsströndinni. Ég hef aldrei lent eða farið á flugvöll á Fílabeinsströndinni en ég hef farið á flugvöll í Kólumbíu og þar voru gríðarmikil mannvirki og ráðstafanir gerðar í þessum efnum sem fara auðvitað eftir alþjóðlegum lögum og reglum. Lög og reglur eru yfirleitt miklu meiri á flugvöllum en gengur og gerist í byggðum þannig að það er engin ástæða til að vanmeta þau. Það má segja að frumvarpið hafi í för með sér að valdmörk brunavarnalaga verði óskýrari gagnvart loftferðalögum eins og bent hefur verið á.

Flugmálastjórn hefur eftirlit með framkvæmd þessara mála og ber ábyrgð á því að hér sé þeim alþjóðlegu samningum sem við erum aðilar að fullnægt og þeim alþjóðlegu stöðlum sem um málið fjalla. Þegar talað er um að við eigum mögulega að gera meiri kröfur er í sjálfu sér ekki ástæða til þess að við herðum þær kröfur sem þegar eru gerðar vegna þess að þær eru mjög góðar og mjög hár standard á öllum þeim flugvöllum sem um ræðir. Það er auðvitað alltaf hægt að auka öryggi út í hið óendanlega og fara nánast í yfiröryggi þannig að við værum t.d. með kafara við hverja höfn til að bregðast við ef einhver færi fram af bryggjunni, en við göngum ekki svo langt. En svo lengi sem við uppfyllum alþjóðlegar skuldbindingar sem við höfum undirgengist um viðbúnaðarþjónustu á flugvöllum tel ég að viðbúnaður sé algjörlega fullnægjandi.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að um þetta verði ekki ágreiningur. Við sjáum alveg fyrir okkur að slökkvilið og slökkviliðsstjórar vilji hafa viðbúnaðinn sem mestan. Það hefur í för með sér gríðarlega mikinn kostnað. Í umsögn fjármálaráðuneytisins í frumvarpinu kemur fram að ekki er gert ráð fyrir að samþykkt frumvarpsins hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir ríkissjóð. Flugmálastjórn eða Isavia hefur tekið saman skýrslu yfir mögulegan kostnað sem yrði samfara þessari breytingu og sú kostnaðaráætlun byggir á áður framsettum kröfum stjórnvaldsákvörðunar slökkviliðsstjóra Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins þar sem beitt er 24. gr. núgildandi brunavarnalaga gagnvart viðbúnaðarþjónustu rekstraraðila Reykjavíkurflugvallar. Ef sú ákvörðun yrði yfirfærð á þá 15 flugvelli sem um ræðir hér í landinu er áætlað að kostnaður gæti orðið upp undir 400 millj. kr. á ári. Það er alveg greinilegt að fjármálaráðuneytið hefur ekki gert sér grein fyrir því. Ég held að við ættum að gæta okkar á að hafa samræmi á milli yfirstjórnar og eftirlits á þessu sviði hjá okkur eins og hjá nágrannaþjóðum en þar eru það flugmálayfirvöld sem hafa umsjón með viðbúnaði og sjá um að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar.

Í umsögn umhverfisnefndar um þetta frumvarp stendur að mikilvægt sé — og nú kem ég að öðru atriði í þessu máli — að verkaskipting á slysstað og björgunarvettvangi sé skýr. Ég tek undir það með nefndinni, ég held að þetta sé mjög mikilvægt atriði. Okkur hefur tekist mjög vel hér á landi að samræma starfsemi viðbragðsaðila þannig að hún er til fyrirmyndar og víða um heim hefur verið tekið eftir henni. Gleggsta dæmið er Björgunarmiðstöðin í Skógarhlíð þar sem settar voru saman sjö stjórnstöðvar sem áður voru starfandi til að koma að viðbragði, leit og björgun. Þar stýra menn sameiginlega aðgerðum og hafa góða yfirsýn yfir hlutina og hefur það leitt af sér að öll ákvarðanataka er miklu skipulagðari og því miklu minni hætta á að upplýsingar misfarist og einhver misskilningur verði á milli aðila.

Ég hef áhyggjur af því sem fram kemur í frumvarpinu í því tilliti að þau verkefni sem samkvæmt núgildandi lögum eru vistuð hjá lögreglu, þar sem kveðið er á um að lögregla fari með yfirstjórn leitar og björgunaraðgerða, séu tekin út úr þeim kafla eins og aðgerðir sem snúa björgun fastklemmds fólks úr mannvirkjum eða farartækjum.

Það er auðvitað grundvallarmunur á hinu eiginlega slökkvistarfi þegar unnið er að slökkvistörfum í byggingum eða annars staðar og því að vera á vettvangi slyss þar sem margir aðilar koma að. Ég vil ráðleggja nefndinni að horfa til þessa þáttar þegar hún tekur málið til umfjöllunar á milli 2. og 3. umr. og kynna sér það sérstaklega vel vegna þess að mikilvægt er að yfirsýn yfir aðgerðir sé á einum stað. Margir aðilar geta komið að stórslysum. Ef tökum sem dæmi fjöldaslys þar sem rúta hefur farið út af þá starfa lögregla, sjúkraflutningabílstjórar og jafnvel slökkvilið og björgunarsveitir á sama vettvangi. Af 30 farþegum gætu tveir verið fastklemmdir. Þá væru tveir stjórnendur á slysstað. Það væri ekki lengur einn sem bæri ábyrgð á vettvanginum öllum og deildi út verkum og sæi um verkaskiptingu á milli viðbragðsaðila og björgunaraðila heldur væru stjórnendur allt í einu orðnir tveir á sama vettvangi og hluti af björgunarliðinu heyrði undir lögreglu en annar hluti undir slökkviliðsstjórann. Þetta vil ég hvetja nefndina til að skoða alveg sérstaklega. Ég get ekki séð að það þurfi að deila um keisarans skegg sem einhver völd í þessu sambandi.

Ég tek undir að það á að vera lögbundið hlutverk slökkviliða að bregðast við og hafa búnað til þess að bjarga fólki. Það hefur verið verkefni slökkviliða og víðast hvar um landið hafa slökkvilið búnað til að bregðast við tilteknum aðstæðum, sums staðar í samvinnu við björgunarsveitir en á stærri stöðunum er verkefnið alfarið á herðum slökkviliða viðkomandi svæða. En þetta er eins og með annað, þegar unnið er við erfiðar aðstæður er mjög mikilvægt að ábyrgðin og yfirsýnin sé hjá einum aðila. Ég vil hvetja nefndina til að stuðla frekar að því að svo verði áfram og að við búum ekki til, eins og mér finnst vera með þessi mál gagnvart Isavia, möguleg flækjustig þegar við ætlum að einfalda hlutina.

Ég fagna því hvernig nefndin hefur tekið á verkaskiptingu milli björgunarsveita annars vegar og slökkviliða hins vegar varðandi björgun á fastklemmdu fólki þar sem bæði er í nefndaráliti og í frumvarpinu sjálfu gerður greinarmunur á því í hverju þessi verk eru fólgin. Ég óttaðist það á sínum tíma að hér værum við einnig að búa til ákveðið flækjustig og því er ekki að neita að það hafa verið áform uppi um það hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að ganga mun lengra en menn þar hafa gert. Þeir hafa sett fram punkta um að markmið þeirra sé að koma upp rústabjörgunarsveit samkvæmt alþjóðlegum stöðlum sem hefði náttúrlega gríðarlegan kostnað í för með sér og er algjör óþarfi miðað við þá stöðu sem þessi mál eru í.

Í skýringum eða athugasemdum við einstakar greinar frumvarpsins segir, með leyfi forseta, um 2. gr.:

„Með sérhæfðum búnaði er m.a. átt við svokallaðar klippur og glennur sem notaðar eru t.d. við að ná fólki úr bifreiðum eftir umferðarslys. Ákvæðið nær til hvers konar björgunarstarfa þar sem slíks búnaðar er þörf, svo sem eftir umferðarslys, flugslys og hvers konar aðra björgun á fastklemmdu fólki. Ekki er hér þó átt við þá starfsemi björgunarsveita sem felst í rústabjörgun.“

Ég tel að þetta sé nægilega skýrt. Ég hef rætt við félaga mína hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu sem hafa lagt mikinn metnað í að byggja upp öfluga rústabjörgunarsveit og þar er sátt við þá niðurstöðu sem ég gerði hér að umræðuefni þegar þessi mál voru tekin fyrir á sínum tíma og vildi ég koma því að.

Ég ítreka, virðulegi forseti, það sem ég segi. Skilaboð til hv. umhverfisnefndar: Ég hvet hana til að skoða sérstaklega þessa þætti gagnvart Flugmálastjórn eða Isavia og verkaskiptinguna á milli lögreglu og slökkviliða varðandi stjórnunarhlutverkið. Ég tel að það sé mjög eðlilegt og í raun nauðsynlegt að skipulag varðandi slökkvilið á flugvöllum verði hjá Flugmálastjórn og þar sé farið eftir þeim alþjóðlegu stöðlum sem við höfum skuldbundið okkur til að fylgja. Að sama skapi tel ég og tala af þó nokkurri reynslu að heppilegra sé að á vettvangi slyss, hvernig sem það er, sé ein yfirstjórn en ekki settir þar fleiri stjórnendur — því getur fylgt ákveðið flækjustig og kannski ágreiningur.