139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

samkeppnislög.

131. mál
[20:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Lilja Mósesdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Kára Kristjánssyni fyrir fyrirspurnina. Ég vil þó byrja á því að gera athugasemd við fullyrðingu sem kom fram í máli hv. þingmanns um að sjaldan hafi jafnvíðtæk heimild sést í lögum eins og sú sem ætlunin er að veita Samkeppniseftirlitinu hvað varðar uppskiptingu á fyrirtækjum sem raska samkeppni.

Það var þannig í samkeppnislögum frá árinu 1993 til ársins 2005 að Samkeppniseftirlitið hafði sambærilega heimild til að fyrirskipa uppskiptingu á fyrirtækjum. Þess má geta að þessi heimild var aldrei nýtt.

Ástæða þess að verið er að biðja um þessa heimild í dag er meðal annars sú að nú eru mörg fyrirtæki komin í fjárhagslega endurskipulagningu hjá fjármálastofnunum m.a. og þessi fjárhagslega endurskipulagning riðlar að mörgu leyti þeim aðstæðum sem ríkja á mörkuðum. Sum fyrirtæki munu verða keyrð í þrot á meðan öðrum fyrirtækjum sem eru með lífvænlegan rekstur er haldið á floti og jafnvel sameinuð öðrum lífvænlegum fyrirtækjum. Það hefur aldrei áður verið jafnmikil ástæða til að Samkeppniseftirlitið hafi slíkt ákvæði eða leyfi til að fyrirskipa uppskiptingu fyrirtækis án þess að það hafi brotið bannákvæði samkeppnislaga.