139. löggjafarþing — 43. fundur,  7. des. 2010.

samkeppnislög.

131. mál
[20:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Lilja Mósesdóttir) (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef áhyggjur af því hve þingmönnum Sjálfstæðisflokksins er umhugað um einstök fyrirtæki í ljósi þess að við erum hér fyrst og fremst til að setja almenn lög sem gilda um öll fyrirtæki í atvinnulífinu. Ég vil jafnframt endurtaka það sem ég hef sagt hér áður, ástæðurnar fyrir því að við gerum þessar breytingar á samkeppnislögum eru tvær. Það er í fyrsta lagi að við búum í mjög litlu hagkerfi sem hefur tilhneigingu til að þróast í einokunarmarkaði. Því er nauðsynlegt fyrir eftirlitsaðila eins og Samkeppniseftirlitið að hafa heimild til að fyrirskipa uppskiptingu fyrirtækja án þess að þau hafi brotið bannákvæði samkeppnislaga.

Hin ástæðan er sú að 60–70% af fyrirtækjum í hagkerfinu eru að fara í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu og mörg þeirra eru sameinuð öðrum fyrirtækjum til að gera þau lífvænlegri. Bankarnir munu meðal annars gera kröfu um að fyrirtæki sem fá afskrifaðar skuldir sameinist öðrum fyrirtækjum. Það getur þá tryggt endurheimtur þeirra en það tryggir ekki endilega almenningi eða neytendum lægsta verð. Það er þá Samkeppniseftirlitsins að meta hvort slík ráðstöfun sé almenningi til hagsbóta, það á að vera hlutverk þess.