samkeppnislög.
Frú forseti. Það var Félag atvinnurekenda sem tók undir sjónarmiðin sem við göngumst undir að það væri jákvætt að veita Samkeppniseftirlitinu umræddar heimildir. Þeir lögðu áherslu á það í umsögn sinni, eins og við tökum undir í nefndaráliti okkar. Við breyttum frumvarpinu frá 1. umr. Orðalagið hefur þann kost í för með sér að tjón almennings er lagt til grundvallar með skýrum hætti. Það þýðir að ekki verður horft fram hjá mögulegum ávinningi neytenda af stærðarhagkvæmni í rekstri sem oft einkennir fyrirtæki í fákeppnisrekstri. Í slíkum tilvikum og í ákvörðunum um úrræði þeim tengdum þurfa yfirvöld bæði að horfa á hag neytenda af stórum rekstrareiningum sem og tjóninu sem neytendur kunna að hafa af athöfnum eða athafnaleysi rekstraraðila á slíkum markaði.
Tjón almennings og hagsmunir eru ætíð til grundvallar. Annaðhvort hvort skipta eigi upp fyrirtækjum í fákeppnisrekstri eða hvort það sé hagkvæmara fyrir neytendur að fyrirtækin séu stór og öflug (Forseti hringir.) á viðkomandi mörkuðum.