samkeppnislög.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að mótmæla því sem fram kemur í nefndaráliti minni hlutans þar sem segir að meiri hluti viðskiptanefndar hafi ekki haft biðlund til að ljúka efnislegri meðferð málsins. Ég vil geta þess að meiri hlutinn, þ.e. allir nema fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefndinni, taldi að þeir 13 aðilar sem boðaðir höfðu verið á fund nefndarinnar, bæði á 138. löggjafarþingi og á núverandi löggjafarþingi, hefðu komið fram með öll þau sjónarmið sem væru í þessu máli. Hv. þingmaður kvartar yfir því að (Forseti hringir.) ákvæði um uppskiptingu fyrirtækja sé ekki nógu skýrt (Forseti hringir.) en enginn af þessum aðilum treysti sér til að skýra þetta ákvæði betur vegna þess að aðstæður á mörkuðum (Forseti hringir.) eru mjög mismunandi.