mál frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Frú forseti. Samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar, sem lögð var fram við þingsetningu í haust, hugðist sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra flytja tíu mál á haustþingi. Af þeim tíu málum voru fimm á sviði landbúnaðar, það voru fimm frumvörp, breyting á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, breyting á ábúðarlögum, nr. 80/2004, og jarðalögum, nr. 81/2004. Í þriðja lagi breyting á lögum nr. 95/2006, um landshlutaverkefni í skógrækt, í fjórða lagi breyting á lögum nr. 84/1997, um búnaðargjald, og í fimmta lagi frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 55/2002, um útflutning hrossa.
Ef maður fer yfir starfið í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd kemur í ljós að ekkert af þessum fimm málum er varða landbúnað hefur komið til umfjöllunar í nefndinni. Ég veit að í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu starfar iðið og gott fólk en mig langar að forvitnast um ástæður þess að ekkert þessara mála hefur komið til nefndarinnar og því síður til kasta þingsins.
Ég spyr: Hvar stoppa þessi mál? Er mikið að gera annað í ráðuneytinu eða stoppa þau einfaldlega í ríkisstjórn? Nær hæstv. ráðherra þeim ekki í gegnum ríkisstjórn?