fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Hv. þingmanni er náttúrlega jafn vel ljóst og mér að við erum í djúpri efnahagslægð. Leiðin sem ákveðið var að fara er blönduð leið, þ.e. niðurskurður á ríkisútgjöldum, en auk þess að ná inn tekjum með skattlagningu. Það er enginn sérstakur tekjuskattur lagður á árinu 2011 en þær álögur sem gert er ráð fyrir, auknu álögur upp á samtals um 11 milljarða kr., tel ég að muni ekki hafa afgerandi áhrif hvað varðar spurningu hv. þingmanns. En auðvitað erum við í slíkri stöðu að engin aðgerð er góð þannig að við veljum þá leið sem líklegust er til að koma okkur skref fyrir skref upp úr efnahagslægðinni. Ég tel að (Forseti hringir.) við séum á réttri leið hvað það varðar.