139. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[12:29]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er þeirrar skoðunar að sú breyting sem við erum að leggja til á hagræðingarkröfu á heilbrigðisstofnanir sé til mikilla bóta. Ég er líka þeirrar skoðunar að í framhaldinu strax á árinu 2011 þurfi að fara fram víðtæk umræða um stefnuna í heilbrigðismálum, hvar áherslurnar eiga að liggja og hverjir eiga að vinna með þær. Þetta þarf að gera snemma á árinu 2011. Við skulum ekki standa aftur frammi fyrir ósætti um heilbrigðiskerfi okkar á sömu nótum og staðreyndin var í haust.