139. löggjafarþing — 44. fundur,  8. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[16:54]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég heyri á honum, og heyrði það reyndar í ræðu hans líka, að hann deilir áhyggjum mínum af þessari hagvaxtarspá og tekjuhlið frumvarpsins. Hv. þingmaður kom inn á það í ræðu sinni til viðbótar áðan að það hefði verið rætt um breytt vinnubrögð í fjárlaganefnd og nefndi sérstaklega eitt sem sneri að safnliðum sem var hugsanlega að færa þá yfir í menningarsamninga til að tryggja að ráðuneytin mundu þá ekki skera þá alla í burtu og halda síðan sínum safnliðum. Við hv. þingmaður eigum sæti saman í fjárlaganefnd, afgreiddum hér fjáraukalagafrumvarp í gær og samþykktum eina ferðina enn útgjöld sem þegar er búið að ráðstafa af framkvæmdarvaldinu. Það er margsinnis búið að benda á í skýrslum Ríkisendurskoðunar að framkvæmdarvaldið tekur sér heimild til að auka umsvif án samþykkis Alþingis.

Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort honum finnist koma til greina að þeim vinnubrögðum yrði breytt á þann hátt að það mætti ekki ráðstafa fjárheimildum áður en Alþingi gæfi samþykki sitt. Þá fælist hugsanlega í því að fleiri fjáraukalagafrumvörp yrðu flutt. Þá væri ekki búið að ráðstafa peningunum því að það er enginn tilgangur í að fjalla um það sem búið er að eyða. Það er búið að ráðstafa peningunum, búið að ráða fólk í vinnu og þá er enginn tilgangur að bera það undir þingið nema bara til afgreiðslu á því sem framkvæmdarvaldið er þegar búið að ráðstafa.

Hv. þingmaður kom líka inn á það í ræðu sinni að menn mörkuðu ekki stefnuna með fjárlögum heldur gerðu fyrst stefnuna og fjárlögin svo. Því spyr ég: Hvað finnst honum um þá hugmynd að á vorin yrði settur útgjaldarammi fyrir hugsanlega hvern málaflokk fyrir sig og samþykktur á Alþingi áður en Alþingi fer heim á vorin og framkvæmdarvaldinu síðan falið að vinna úr þeim og koma með tillögur þegar þingið kemur saman aftur að hausti?