fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann nefndi að hann muni leggja fram tillögur þess efnis að fagleg úttekt verði gerð á starfsemi æskulýðssamtaka ef ég skildi hann rétt. Ég ræddi áðan, eftir ræðu formanns fjárlaganefndar, að við mundum fara í að gera úttekt á niðurskurðinum sem boðaður hefur verið í heilbrigðiskerfinu. Hún tók því vel og lagði til að það yrði gert strax á næsta ári. Ég fagna þessari stefnu og vilja meiri hlutans að skoða í hvað við setjum peningana, hvort sem það er á stórum skala eins og heilbrigðiskerfið eða litlum eins og æskulýðssamtök. Ég velti fyrir mér hvort við þurfum ekki að gera þetta á fleiri sviðum. Við horfum upp á það í fjárlaganefnd að það er mismunur á framlögum til hjálparsamtaka. Að mínu mati mætti mæðrastyrksnefnd koma betur út. Mér finnst að það þyrfti að liggja betur fyrir í hvað fjármunum sem Alþingi ráðstafar er varið. Nýtast þeir í verkefni sem við viljum að þau nýtist í. Það væri gott að fá álit hv. þingmanns á þessu og hvort ekki sé vert að gera skurk í því að rannsaka í hvað fjármunir Alþingis fara.