fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður ræðir í seinna andsvari sínu um hagvöxt sem ESB og OECD spá nú. Ég hef þá trú, virðulegi forseti, að hagvöxtur verði meiri en þessar spár sem verið er að setja fram núna kveða á um. Ég geri mér grein fyrir því að stórframkvæmdirnar munu fara í gang ef samningar takast við lífeyrissjóðina í vegamálum upp á hvorki meira né minna en 40 milljarða kr. Það er hvergi metið inni í hagvaxtarspá, hvergi. Ef þetta gengur eftir sem ég hef alltaf verið bjartsýnn á að muni gera, það tekur bara þennan tíma að koma þessu á, þá mun verða verulega gefið í í þessari atvinnugrein. Það mun hafa jákvæð áhrif alveg eins og, virðulegi forseti, sú bjargfasta trú mín að framkvæmdir í Helguvík munu fara á fulla ferð á næsta ári þegar opnast fyrir erlenda fjárfestingu inn í landið og erlent fjármagn og samningsaðilarnir sem takast á um orkuverðið ná samningum. Vonandi ná þeir því. Þá mun þetta koma í framhaldi af því og við munum ekki þurfa að horfa á þennan mikla niðurskurð, hvorki 2012 né þar á eftir.