139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[14:03]
Horfa

Kristján Þór Júlíusson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Við göngum til atkvæða um frumvarpið við 2. umr. og miðað við þann fjölda og það umfang tillagna sem fyrir liggja má segja að í rauninni standi lítið eftir af upphaflegu fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram 1. október sl. Einhverjir velmeinandi menn hefðu kosið að orða það svo að það frumvarp væri rústir einar miðað við það sem liggur fyrir í dag. Ég legg áherslu á að þrátt fyrir þetta er frumvarpið enn hálfklárað. Ýmsar grunnforsendur eru enn á mjög veikum grunni. Þingflokkur okkar sjálfstæðismanna hefur lagt fram aðrar leiðir, aðra nálgun að þeim erfiðu viðfangsefnum sem við er að glíma og ég tek fegins hendi því boði sem rétt var fram í gær um að fjárlaganefnd Alþingis muni fara yfir þær tillögur af fullri einurð milli (Forseti hringir.) 2. og 3. umr.