fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Eins og hagvaxtarspár Hagstofunnar, OECD og Evrópusambandsins gefa til kynna hefur vinstri stjórninni mistekist það ætlunarverk sitt að auka hagvöxt. Tekjur verða rýrari og hagkerfið hefur kólnað.
Þingflokkur framsóknarmanna hefur lagt fram útfærðar leiðir til að auka tekjur ríkissjóðs, örva hagvöxt og koma hjólum atvinnulífsins af stað. Við viljum líka vernda heilbrigðiskerfið og ég er þeirrar skoðunar að þær tillögur sem meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt til gangi einfaldlega ekki nógu langt. Núna á að fara í gagngera kerfisbreytingu á heilbrigðiskerfinu en í staðinn fyrir að það verði gert á einu ári á að gera það á 2–3 árum og ég mótmæli því eindregið.