fjárlög 2011.
Frú forseti. Við greiðum atkvæði um fjárlagafrumvarpið. Hér birtist hugmyndafræði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og hér kemur hún til framkvæmda á Íslandi. Almenningur sem hefur þurft að beygja sig undir kvaðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hvar sem er í heiminum hefur aldrei riðið feitum hesti frá því. Þannig er komið fyrir Íslendingum í dag með stuðningi ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna.
Það er mjög margt að þessu frumvarpi og það gengur ekki upp röklega séð. Þetta er í rauninni alger vitleysa. Starfið í nefndinni hefur verið ágætt en samt hefur verið furðulegt að sjá með hvaða hætti menn ætluðu að endurskipuleggja heilbrigðiskerfi alls landsins í gegnum fjárlögin í upphafi. Þannig á ekki að vinna. Það á að gera stefnumótun í heilbrigðisáætlun fyrst og framfylgja henni svo.
Vinnan í nefndinni hefur samt verið góð. Formaður nefndarinnar hefur staðið sig með stakri prýði og ég legg til að það verði gert að venju í fjárlaganefnd að formaður nefndarinnar verði með reynslu sem skólastjóri. Það hefur gefist vel í þau ár sem ég hef verið í fjárlaganefnd. [Hlátur í þingsal.]