fjárlög 2011.
Frú forseti. Í þessum fjárlögum og öðrum aðgerðum ríkisstjórnarinnar birtast efnahagsáherslur ríkisstjórnarinnar. Við höfum ekki gagnrýnt niðurskurðinn í fjárlögunum. Við höfum gagnrýnt hvernig að honum hefur verið staðið og hvernig hann hefur verið undirbúinn, hver forgangsröðunin er og hvernig samráðinu hefur verið háttað við þá sem þar eiga allt sitt undir, hvort sem er úti á landi eða á höfuðborgarsvæðinu. Við höfum hins vegar sérstaklega gagnrýnt tekjuhlið þessa frumvarps, þær skattahækkanir sem hér eru kynntar til sögunnar og við sjáum á tekjuhliðinni og síðan aðrar aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem með skattahækkununum eru að draga allan þrótt hér úr efnahagskerfinu. Hingað koma m.a.s. stjórnarliðar og lýsa yfir áhyggjum af því að hagvöxtur hefur ekki tekið við sér. Nýjustu spár eru einmitt eins og hv. þm. Lilja Mósesdóttir vakti athygli á rétt áðan, þær eru allar hallandi, þær eru allar niður á við, síðasta spáin innan við 1%. Það er það sem er alvarlegt. Það mun eflaust (Forseti hringir.) valda því að þessi sama ríkisstjórn, verði hún enn við völd eftir eitt ár, mun enn og aftur koma með skattahækkanir vegna þess að hún virðist ekki trúa því að hægt sé að loka fjárlagagatinu með neinni annarri aðferð.