fjárlög 2011.
Hæstv. forseti. Allir landsmenn átta sig á því að það eru erfiðir tímar og það er krafa og þörf fyrir að skera niður. Það er hins vegar ekki sama hvernig það er gert, það þarf að forgangsraða og ég vona svo sannarlega að allir þingmenn hafi lært það á þessum kollhnísum sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa farið varðandi heilbrigðismálin í landinu að það þarf að forgangsraða, gera það í samráði við þá aðila sem starfa í þessum greinum og þannig að landsmenn allir upplifi stefnu stjórnvalda þannig að menn sitji við sama borð og að það sé það leiðarljós sem menn hafa í huga. Þannig komumst við fyrr í gegnum þetta og í meiri sátt við alla menn.
Við sjálfstæðismenn höfnum skattahækkunaráformunum ríkisstjórnarflokkanna. Við munum ekki skattleggja okkur út úr kreppunni. Það er ekki leiðin. Það er hins vegar von og hún felst í tillögum okkar sjálfstæðismanna. Við skulum vaxa upp úr kreppunni. Tillögur okkar liggja hér frammi og ég hvet alla þingmenn til að kynna sér þær.