139. löggjafarþing — 45. fundur, 9. des. 2010.
fjárlög 2011.
1. mál
Virðulegi forseti. Hér er lagt til að bæta aðeins í þessa tvo liði, annars vegar til Hæstaréttar um rúmar 23 millj. kr. og hins vegar til héraðsdómstólanna um rúmar 64 millj. kr. Þetta snýst um það að fjölga starfsfólki í Hæstarétti og dómurum við Héraðsdóm Reykjavíkur. Ég styð þessa tillögu, það er aukið álag á dómskerfið og ég fagna því að því sé mætt með þessum hætti.