139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[15:23]
Horfa

Höskuldur Þórhallsson (F):

Virðulegi forseti. Hér er lagt til að hagræðingarkrafan á lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu verði minnkuð. Fjárframlag er aukið um 58 millj. kr. og það er vel.

Mig langar samt að hafa nokkur orð um löggæsluna almennt í landinu. Við leggjum til í áliti okkar að bætt verði í þennan lið og munum leggja fram tillögur milli 2. og 3. umr. í þá veru. Það liggur fyrir að álag á lögregluna víðs vegar um landið jókst við efnahagshrunið. Það er þannig komið núna að það hefur reynst erfitt að manna vaktir og halda uppi lágmarksþjónustu til að tryggja öryggi þegnanna. Það hefur líka komið fram að það þarf að forgangsraða betur innan þessa kerfis.

Við framsóknarmenn munum því sitja hjá við þessa atkvæðagreiðslu og leggja til að löggæslan á landinu verði efld.