fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Ég vil vekja athygli á tölulið 65, fjárlagalið 07-101. Þetta er fjárlagaliður sem varð til á ríkisstjórnarfundinum í víkingaskipinu forðum daga. Þarna er lagt til að varið verði 10 millj. kr. til að styrkja aðalskrifstofu félagsmálaráðuneytisins til að ráða starfsmann sem annist samstarf og samráð við sveitarfélög á Suðurnesjum um sértæk mál er varða íbúa svæðisins.
Ég mun koma með breytingartillögu við 3. umr. þess efnis að þetta starf verði ekki til á aðalskrifstofu félagsmálaráðuneytisins heldur að þetta verði þá a.m.k. framlag ríkisstjórnarinnar til að vinna bug á atvinnuleysi á Suðurnesjum. Sköpum þetta starf þar.