fjárlög 2011.
Frú forseti. Ég fagna því að það sé svo rík samstaða um það í þinginu að flytja málefni fatlaðra yfir til sveitarfélaga. Það er rétt sem fram kom í máli hv. þm. Péturs H. Blöndals að við vinnum undir mikilli tímapressu en við erum jafnframt að vinna þetta eins vel og við mögulega getum. Við sem löggjafi ætlum okkur að tryggja að það verði vörður á leiðinni þannig að ekki verði gengið á réttindi fatlaðra með þessari yfirfærslu og að allt kapp verði lagt á að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra og bæta lífsgæði og mannréttindi þess hóps Íslendinga sem býr við fötlun.