fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Fjárlagafrumvarp er eðli málsins samkvæmt lagt fram á ábyrgð ríkisstjórnarflokka hverju sinni. Í því fjárlagafrumvarpi sem við erum núna að afgreiða við 2. umr. var m.a. gert ráð fyrir því að skerða mjög heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þessu var mætt af fyllstu hörku af íbúum landsbyggðarinnar, talað um aðför að landsbyggðinni í því sambandi og atlögu að heilbrigðisþjónustunni.
Það leið ekki nema vika frá því að fjárlagafrumvarpið hafði verið lagt fram þar til ljóst varð að ekki var þingmeirihluti fyrir þeirri stefnumótun sem þar birtist. Nú sjáum við að það er að takast að brjóta a.m.k. að miklu leyti á bak aftur þá stefnumótun sem birtist í fjárlagafrumvarpinu varðandi heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þó er ekki nægilega mikið að gert. Hér er það boðað að skoða fáeinar stofnanir sem verða teknar til sérstakrar meðhöndlunar. Í því sambandi vek ég athygli á því hvað áhrærir t.d. sjúkrahúsið á Sauðárkróki að það mun búa við 12% skerðingu (Forseti hringir.) sem mun hafa veruleg áhrif á sjúkrahúsþjónustuna þar og ég hvet fjárlaganefnd til að taka þá stofnun sérstaklega til skoðunar milli 2. og 3. umr.