fjárlög 2011.
Frú forseti. Ég tek undir með fyrrverandi hæstv. heilbrigðisráðherra, hv. þm. Álfheiði Ingadóttur, sem sagði áðan að það væri ánægjulegt að fundist hefði svigrúm til að draga allverulega úr áformum um niðurskurð í heilbrigðismálum þannig að hlífa megi þessari viðkvæmu þjónustu. Hér eru greidd atkvæði um Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar er dregið úr áformuðum 16–22% niðurskurði niður í 5,6% og eitthvað í kringum 8%. Það er mjög ánægjulegt að það tókst að færa hagræðinguna niður í þær tölur og samkvæmt upplýsingum frá báðum þeim stofnunum núna í dag sér hvorug þeirra fram á að þurfa að segja upp starfsfólki út af þessum tillögum heldur geta þær náð þessari hagræðingu fram með öðrum hætti. Auðvitað er það mikið fagnaðarefni af því að hér er um að ræða viðkvæma þjónustu, jafnréttismál, öryggi allra íbúa Íslandsbyggðarinnar til grunnþjónustu í heilbrigðismálum. Við hljótum öll að taka undir þakkir og árnaðaróskir til heilbrigðisyfirvalda (Forseti hringir.) sem hefur tekist að draga svo úr niðurskurðinum sem raun ber vitni.