fjárlög 2011.
Frú forseti. Ég minni á þann fyrirvara sem ég gerði við upphaf atkvæðagreiðslunnar og um leiðréttingar milli 2. og 3. umr. Ég tek líka undir orð þeirra sem hvetja til þess. Það er boðaður 3% niðurskurður yfir heildina en hann kemur misjafnlega niður. Hann kemur meira niður á landsbyggðinni en hér. Dæmi hafa komið fram um það og þau þarf að skoða mjög vandlega.
Ég vil líka gera að umtalsefni hér um Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að á Suðurnesjum er atvinnuástand hvað bágbornast á Íslandi. Slíku atvinnuástandi fylgja félagsleg, læknisfræðileg og heilbrigðisleg vandamál. Það verður að horfa til fleiri átta þegar menn skoða aðstæður heilsugæslustöðva. Ég minni líka á yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá fundi á Suðurnesjum um að styrkja menntakerfi, atvinnukerfi þar og aðra þjónustu við íbúana.