139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[16:24]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F):

Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um St. Jósefsspítala. Það er verið að milda niðurskurðinn þar eins og annars staðar. Þetta eru reyndar háar tölur, það er verið að milda hann úr 51% í 37% en það stendur líka til að sameina St. Jósefsspítala og Landspítala – háskólasjúkrahús. Það er búið að koma á laggirnar nefnd sem á að skoða það mál og ég hef þá trú að út úr því samstarfi gæti komið öflug heilbrigðisþjónusta á St. Jósefsspítala. Þá verður þar að mínu mati annaðhvort áfram öflug kvenlæknaþjónusta ásamt grindarbotnsteyminu eða öflug meltingarfæraþjónusta. Þetta er nokkuð sem St. Jósefsspítali og Landspítali eiga eftir að ræða saman um og ég hef það mikla trú á báðum þessum stofnunum að ég held að við munum fá öflugri þjónustu út úr sameinaðri stofnun en út úr þessum tveimur stofnunum eins og þær eru í dag (Forseti hringir.) af því að ég held að svo öflugt fólk vinni í þessum málum.