139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[16:43]
Horfa

Mörður Árnason (Sf):

Forseti. Mér kemur á óvart að meiri hluti Sjálfstæðisflokksins skuli í þessari atkvæðagreiðslu taka afstöðu til breytinga sem við erum að gera á þinginu, bæði í skipulagslögum, mannvirkja- og brunavarnalögum. Ég skil ekki þá röksemd síðasta hv. ræðumanns að Þjóðskrá eigi að taka við eftirliti með brunavörnum á Íslandi. Mér kemur það á óvart. Við erum að vinna verk í þinginu sem sjálfstæðismenn hafa unnið með okkur, þeir sem í nefndinni eru. (Gripið fram í.) Þeir hafa ekki lýst yfir andstöðu við þetta mál í nefndinni, gera það hins vegar hér í fjárlagaumræðunni. Þetta er mjög sérkennileg (Gripið fram í.) niðurstaða og ekki til vitnis um það að Sjálfstæðisflokkurinn ætli að taka þátt í almennum framförum hér í landinu með okkur hinum. [Frammíköll í þingsal.]