fjárlög 2011.
Virðulegi forseti. Við skulum ekki gleyma því að ofanflóðasjóður var á sínum tíma stofnaður til að verja mannslíf. Það sem hefur verið gert í uppbyggingu á því sviði hefur skipt gríðarlega miklu máli fyrir byggðina í landinu og íbúana. Ég ætla að fullyrða, og þekki það af eigin reynslu, að þar hefur verið vel að verki staðið. Þessi uppbygging hefur skipt gífurlega miklu máli fyrir íbúa víða um landið. Þess vegna er mjög mikilvægt að hvika í engu frá áætlunum sem hafa verið settar fram um uppbyggingu á þessu sviði og það sem hér er verið að gera með þessari fjárveitingu er viðleitni í þá átt. Ég styð þetta mál til viðbótar við það auðvitað að þetta skiptir máli í atvinnulegu tilliti. Þetta mun fjölga störfum sem skiptir máli og það munar um það á þessum tímum. Aðalatriðið er samt að við erum að búa til aðstæður til að verja mannslíf í landinu.