139. löggjafarþing — 45. fundur, 9. des. 2010.
fjárlög 2011.
1. mál
Virðulegi forseti. Hér er verið að leggja til aukningu upp á 350 millj. kr. til uppbyggingar á snjóflóðavarnagörðum í Neskaupstað og á Ísafirði. Mig langaði bara að segja hér örstutt að ég fagna þeirri samstöðu og samvinnu sem átti sér stað í fjárlaganefnd þannig að þetta gæti orðið að veruleika.