139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[16:48]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Frú forseti. Nú eru 15 ár liðin frá einhverjum hrikalegustu snjóflóðum á Íslandi, á Flateyri og í Súðavík. Það fer vel á því í ljósi þeirra mannslífa sem eru í húfi og þeirra atvinnutækifæra sem eru í boði að gefa umtalsvert í, sækja í þessa sjóði sem eru nokk digrir með allmarga milljarða innan borðs og sækja fram í öryggismálum og atvinnumálum, (Gripið fram í.) slá þar tvær flugur í einu höggi. [Kliður í þingsal.]