139. löggjafarþing — 45. fundur,  9. des. 2010.

fjárlög 2011.

1. mál
[17:02]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég vek athygli þingheims á því að að öllum líkindum er þessi liður orðinn úreltur nú þegar. (VigH: Rétt.) Nokkrir þingmenn hafa skotist fram og komist á vefinn og þar er verið að kynna fyrir öllum sem hann skoða nýjan Icesave-samning. (Gripið fram í: Nema utanríkismálin …) Ég veit ekki alveg hvað á að segja við þessu. Það væri kannski ekki vitlaust að hafa hlé á fundinum til að hv. þingmenn gætu bara farið á netið og lesið sér til um þetta og kannski séð þá hversu úreltur þessi liður er. Það er fullkomin hneisa, virðulegi forseti, að við skulum vinna þetta með þessum hætti á meðan upplýsingar um þetta gríðarstóra mál koma enn og aftur síðast allra til hv. þingmanna. (Gripið fram í: Ekki gera þeir þetta …)